Nonna

Nonna

31.05.2008 17:05:33 / jonagu

Mynd í banner fyrir Fríðu


Varð að prófa hvort þetta virkaði fyrst þú spurðir mig :)

velur Uppsetning sem er undir Útlit í Vefstjórn
Þar er "breyta mynd í toppi"  klikka á velja mynd, færð þá upp glugga til að setja vefslóðina í.

Myndin þarf að vera til á netinu t.d. er slóðin á myndinni sem ég setti þessi: http://www.barnaland.is/album/img/15014/20050413161147_3.jpg

þú finnur myndina þína t.d. á barnalandi eða í myndasafni þínu hér á blogcentral og hægri smellir á hana og velur properties og þá sérðu slóðina sem þú getur kóperað.

luv ya

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 17:47:19 / jonagu

do we need a man?!

  

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 11:53:04 / jonagu

Drama...wazz up

Hvar er allt dramað!  Það er ekkert fjör í gangi hérna lengur.  Come on stelpur.....   

En nóg um það, fermingadramað heldur áfram, búin að skoða einn sal í grafarholti sem er ágætur og fáum tilboð í þann sal með veitingum í þessari viku.  En verð sennilega að fara í gjaldþrot og fara að lifa í félagsmálapakkanum eftir þessa brjáluðu fermingu sem er bara eintómt peningaplokk.  bla bla bla ... en hvað um það maður á nú bara eitt barn og sleppur sennilega bara vel frá þessum pakka miðað við marga aðra. ;)  Er samt í góðum gír með þetta fermingardæmi þar sem ég er með perfekt fermingarskipuleggjara sem býður mér reglulega í mat eða kaffi til að ræða málin..he he ... alltaf að græða smá!

see ya nonnan


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 19:41:24 / jonagu

jamm og jæja

...

og ennþá meira fundarsetur.. þurfti aftur að fara á fund í dag.  Í þetta skipti í Varmárskóla og með skólastjórnendum og foreldraráði sem betur fer var þetta ekki nema klukkutími og skólastjórinn mætti með bakkelsi! 

Kaffihúsaferðin sem nokkrar verjur höfðu planað rann út í sandinn vegna mikilla anna hjá fólki, svona eins og sumarbústaðaferðin sem er búið að strika út!  Við verðum nú að fara að hafa tíma til að hittast!  Við getum ekki verið svona uppteknar alltaf hreint. 

heyrumst nonnan


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 23:58:17 / jonagu

fundarsetur!

Ég held að ég sé þvílíkt búin að láta plata mig núna!  Ég er semsagt í foreldraráði í Varmárskóla, búin að vera í nokkur ár og hef hingað til farið á fund ca. einu sinni í mánuði í u.þ.b. klukkustund í senn.  Var auk þess að taka að mér að vera fulltrúi foreldra í fræðslunefnd.  Sára saklaust virðist vera frekar auðvelt þar sem ég er í raun áheyrnarfulltrúi.... fór á fyrsta fundinn í dag og komst fyrir það fyrsta að því að það er yfirleitt fundað á tveggja vikna fresti stundum oftar ef mikið liggur fyrir!  ..ekki er sagan búin því að fundurinn byrjaði kl. 17.15 og var slitið kl. 18.45 og ég hugsaði með mér að ef þetta yrði ekki lengra en þetta á væri nú allt í lagi.  Heyri ég þá ekki konuna við hliðina á mér segja .."vá þetta var bara stuttur fundur" ...  ohh my god.. og það sem var rætt á fundinum í dag voru 2 skýrslur upp á ca. 130 bls.

nonnan sem verður að drukkna í fundum, skýrslum og málæði í vetur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 18:33:43 / jonagu

Gestir og slíkt..

Var með gesti um síðustu helgi, reyndar bara ma og pa en það táknaði samt að ég lánaði þeim herbergið mitt og flutti sjálfa mig inn í herbergi dóttur minnar.  Það er hreinlega nauðsynlegt að vera með aukaherbergi þegar maður á ættingja út á landi sem þurfa að fá að gista öðru hverju.  Íbúðaverð er bara svo syndsamlega hátt að það er ekki fyrir "single white female" að  hætta sér út á þann markað!! 

Á föstudagskvöldið var eldhúskróknum breytt í svefnkrók því að við fengum tvo næturgesti í viðbót, synir bróður míns fengu að gista.  Það er alltaf smá mál hver fær að fá ömmu og afa í gistingu og Rafn Orri frændi minn er með skipulagið svo á kristaltæru að hann sér um að segja þeim hvar þau eiga að gista næst.  Þau eiga semsagt að gista næst hjá honum :) 

Örvar bauð svo okkur öllum í grill á laugardagskvöldið, alveg hreint frábær matur.  Svínalundir og nautasteik, salat, maís og grillaðar kartöflur mmmmmm

takk fyrir mig

nonnan


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 00:25:19 / jonagu

Ferming

OMG... ferming..

Það er ekkert smá vinna framundan við fermingarundirbúning... 

Salur :  sem allir brjálæðingarnir bókuðu við fæðingu barns ergo ekki hægt að leigja sal nema einhverstaðar út á landi í e-h krummaskuði

Veitingar: veisluþjónusta/heimabakstur hmmm hvað skal gjöra... well ég kann ekki að baka og glætan að ég ætli að svitna yfir pottum, svo reikna með að það verði keypt.

Myndataka: money money money

Föt/greiðsla: money money money x2

og síðan öll hin litlu smáatriðin sem þarf að taka ákvörðun um og framkvæma.  En svona er þetta nú bara, maður tekur bara því sem að höndum ber og gerir sitt besta til að halda veglega veislu (sem verður kannski haldin á KFC!) 

bla bla bla  nonnan


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 19:53:29 / jonagu

Gelgjan og háhæluðu skórnir

já dóttir mín er að breytast í þvílíka gelgju, mascari og augnskuggi á hverjum degi.  Alltaf með slegið hárið því að það er lame að vera með tagl!  (það vissi ég ekki).  Hún er búin að pakka niður öllu dótinu og það er bara hlustað á músík, horft á DVD og farið í Smáralind og í bíó.  ...  og hún fór á skókynningu og keypti sér skó sem væri varla fréttnæmt ef þeir væru ekki þvílíkt háhælaðir.. ég á held ég eigi ekki skó með jafnháum hæl! 

Skórnir ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 00:42:59 / jonagu

Rockstar

 

   YEAH..... Magni er langbestur..


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 18:14:21 / jonagu

velkomin heim!

vá hvað það er erfitt að vera tölvulaus í smá tíma! Er þvílíkt hamingjusöm núna, var að ná í tölvuna í viðgerð.  Annað skiptið á þrem árum sem eitthvað f***ing "powersupply" bilar! það var semsagt ekki hægt að kveikja á pésanum.  Það kostaði að sjálfsögðu tíu þúsund kall að gera við greyið, sem væri nú ekkert mál ef ég væri ekki geðveikt blönk þessa dagana.  Er svo krunk eftir sumarfríið að ég er bara ekki að meika þetta.  Það er eins gott að vera duglegur að vinna yfirvinnu svo að maður fá smá pening upp í spenderíið á erlendri grundu!  :$  Verð að drífa í því að vinna niður sumarfríið áður en jólaeyðslan tekur af mér völdin.

see ya nonnan


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 19:01:19 / jonagu

músí mús

Eins og sást á síðustu færslu þá uppgötvaði ég símablogg! sem er alveg þokkalega flott en ekki fyrir svona þumalfingur eins og mig.  Tók mig þvílíkt langan tíma að skrifa bara eins og tvær línur.  Sms fingrasetningin er ekki af ekki af nýjustu gerð.  Reikna því með að halda mér við gamla góða pésann minn :P 

Sara flakkari er loksins komin heim, var búin að vera á Ólafsfirði í mánuð og skemmti sér konunglega.  En nú fer alvara lífsins að taka við og mun hún setjast á skólabekk aftur þann 24. ágúst.  Skólasetning verður 23.ágúst.

Magni heldur ennþá fyrir mér vöku, er alltaf þokkalega góður og ekkert á leiðinni að detta út, sé fram á að verða að vinna upp svefninn í sept/okt.!? Hvenær er þetta SN annars búið? 

Þarf að fara á boring húsfund á eftir, er þvílíkt ekki að nenna því.  Er með plön um að vera frekar ákveðin og tilkynna að fundurinn verði alls ekki lengur en í hálftíma-þrjúkorter.  Get því miður ekki farið fyrr en allir hinir þar sem ég er formaður húsfélagsins. 

see ya nonnan


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 22:32:01 / jonagu

Mobile

Var að komast að því að èg get bloggad í símanum! En það tekur þvílìkt langan tíma:-O púff, en varð að prófa. See ya nonnan

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 02:09:12 / jonagu

Rockstar

Það stefnir allt í þreyttan dag á eftir... því að venju þá er ekki hægt að sleppa því að horfa á Rockstar.  Magníí, gullni drengurinn frá Íslandi er náttúrulega laaaangbestur.  Þjóðarstoltið rifnar út og hoppar af gleði, því að "okkur" og drengnum "okkar" gengur svooo vel.. he he  Að venju sér Zayra um skemmtiatriðin og gerir það vel, hvar ætli maður kaupi sér svona sundbol? Er búin að redda keðjunum í Brynju og um leið og sundbolurinn er í höfn er bara að finna rétta vettvanginn fyrir múnderinguna... 8|

see ya

nonnan


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 22:56:29 / jonagu

home sweet home...

sumarfrísmyndir á síðunni hennar Söru http://barnaland.is/barn/18693

Komin heim aftur... ok það eru tvær vikur síðan en hef bara ekki meikað að hanga mikið á netinu.  Er búin að vera í smá sólarfráhvarfi eftir heimkomuna, það er bara endalaus rigning í gangi, en orkuskotið kom í dag 8)

Er reyndar bara búin að vera að vinna í eina viku þar sem bíllinn var ennþá bilaður þegar ég koma heim, minn heittelskaði bróðir sem hafði lofað að gera við, gerði bara ekkert við neitt.  En hann hafði nú samt góða afsökun svo að honum er fyrirgefið!  Nú er farartækið komið með nýjana alternator eða hvað sem það nú heitir og fer í gang þegar ég ætlast til þess, yeah!

Sara er búin að vera í rúma viku á Ólafsfirði og skemmtir sér konunglega, ætlar að vera í sumarfríi með pabba sínum í nokkrar vikur.

Er alveg að gefast upp á að bíða eftir Magna í Rockstar en verð að fá að vita hvort hann heldur áfram... bara verð!  So svefninn er í öðru sæti í kvöld ( og í gærkv.)

okídókí

see ya nonnan


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 13:42:36 / jonagu

Brottför 7:15

Það er komið að því, ferðalagið hefst í nótt.  Brottför frá Kef kl. 7:15, Þarf að vera mætt hjá bróðir mínum kl. 4 úff!  Þarf að fá bílinn hjá pabba í kvöld til að komast til Hafnafj. í nótt, því að minn eðalvagn tók upp á því í gær að bila!  já við Sara sátum í bílnum út í kanti í ausandi rigningu og biðum eftir björgun í gær.  Tækið bara þverneitaði að virka, brósi kom systur sinni til bjargar og dró bílinn á verkstæðið sitt og ætlar að finna út hvað er að og gera við drusluna á meðan ég baða mig í sól og sælu í Króatíu.

Hafið það súpergott :)

see ya nonnan


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti